Sunday, March 11, 2012

                                                   Hestur á Tölti
Hestur á skeiði                 
Íslenski hesturinn er sá eini sinnar tegundar sem hefur fimm gangtegundir þ.e.a.s. hann er sá eini sem getur haft þær allar fimm. Þær eru fet, tölt, brokk, stökk. Sé hestur með allar fimm gangtegundirnar er hann kallaður alhliða hestur. Ekki eru þó allir íslenskir hester með þær allar, svokallaðir klárhestar með tölti hafa allar nema skeið. Ef hestur er að hlaupa frjáls á ósléttu landslagi eða ef knapi er með hest í taumi kýs hann að öllu jafnaði brokk og má því segja það sé þægilegasta gangtegundinn fyrir hestinn. Þegar hestur er á brokki kom tveir fætur niður samtímis, hesturinn spyrnir t.d. með vinstri afturfæti og hægri framfæti og lendir á hægri afturfæti og vinstri framfæti o.s.frv. Tölti er stundum líkt við hlaupandi fetgang en þar eru ýmist einn eða tveir fætur á jörðinni í einu, hægri fram fótur og hægri afturfótur fara fram samtímis og svo öfugt. Stökk er sú gangtegund sem hestur tekur hraða spretti á þá fara báðir framfótarnir fram á sama tíma annar aðeins lengra og svo koma báðir afturfótarnir að þeim fremri og svo koll af kolli. Skeið er einnig riðið á stuttum sprettum á afar miklum hraða. Þar tegir hesturinn hægri fram og hægri aftur fót eins langt fram og hann getur og svo öfugt og komas þá afar hratt, þetta geta bara alhliða hestar og getur verið alveg hreint mögnuð sjón. Nokkuð er um skeiðspretti í myndböndunum hér fyrir neðan.

No comments:

Post a Comment