Meri gengur með folald í 48 vikur eða rúma 11 mánuði og svo kastar hún eins og það er kallað þegar meri "fæðir". Ef meri á að skila öðru folaldi að ári liðnu þarf hún að fara stuttu eftir að hitt folaldið hefur fæðst til stóðhests til að fá í sig annað folald. En afkvæmin eru kölluð folöld þangaði til þau verða vetur gömul en aldur þeirra er taldur í vetrum þar sem þau fæðast að vori eða sumri til. Þau eru síðan kölluð Trippi frá 1 til c.a. 4 til 5 vetra. Flestir hestar eru geldir sem trippi, nema þeim sem er ætlað að verða graðhestar eða stóðhestar einsog þeir eru oftast kallaðir. En þeir eru þá oftast undan miklum gæðingum eða stefna í að verða það sjálfir og er mun meira sem þarf að hafa í sambandi við umhirðu og allt annað tengt stóðhesti en venjulegum geldum hesti.
Ps: Við getum svarað öllum spurningum, endilega spurjið :)
No comments:
Post a Comment